Skilmálar

Vefverslunin

Pöntun er afgreidd þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Val stendur á milli að sækja pöntun eða fá sent. Allar sendar pantanir fara með Íslandspósti og eða Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts og Dropp um afhendingu vörunnar.

doggo.is ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá doggo.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Möguleiki er á að sækja vörur hjá okkur og ef sá möguleiki er valinn þá fær kaupandinn upplýsingar um þær.

Seljandi tekur rétt viðskiptavina vegna persónuvendar og trúnaðar alvarlega. Seljandi mun gera allt sem í valdi hans stendur til að tryggja trúnað um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli OlsenRúts ehf. og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum

Greiðslur

Doggo.is leitast við að sem flestir geri keypt vörur hjá okkur á sem þægilegasta hátt sem hentar viðskiptavinum okkar.

Þú getur greitt fyrir vöruna í vefversluninni með Debet- eða kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt Teya sem hefur hlotið PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) öryggisvottun. Einnig bjóðum við uppá Apple pay og Google pay.

Einnig bjóðum við uppá þægilega greiðsluleiðir fyrir viðskiptavini okkar sem eru Aur, Netgíro og Pei.    

Viðskiptavinir okkar geta líka lagt inná bankareikning okkar og koma þær upplýsingar upp í greðisluferlinu.

Öll verð eru byrt með 24% VSK og eru reikningar gefnir út með VSK. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur doggo.is sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.

Ef varan er ekki til á lager látum við viðskiptavin vita eins fljótt og auðið er og vinnum í laus á því máli, annað hvort með að skipta í aðra vöru eða endurgreiðslu hafi greiðsla farið fram. Verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Sendingar og skilafrestur

Vefverslun okkar er beintengd við póststoð Íslandspósts og reiknast því sendingarkostnaður miðað við verðskrá þeirra áður en greiðsla fer fram. Enginn sendingarkostnaður er greiddur fyrir pakka sem sóttur er á afhendingarstað Dropp fyrir pantanir sem fara yfir 10.000 krónur.

Ef þú pantar fyrir 5.000 kónur eða meira færðu fría heimsendingu innan Suðurnesja.

doggo.is sendir um allt land.

Í raun er doggo.is Íslensk vefverslun, en við viljum samt alltaf aðstoða viðskiptavini okkar eins og við getum. Ef viðskiptavinur sem er búsettur erlendis vill fá þær vörur svem við bjóðum uppá, munum við leitast leiða til að reyna að útfæra það með viðskiptavini.

Gott væri að senda okkur tölvupóst á pantanir@doggo.is ef spurningar vakna.

Afhendingartími innanlands er að jafnaði 2-4 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Varan er send beint heim að dyrum til kaupanda þar sem við á, ef heimkeyrsla er ekki í boði í viðkomandi bæjarfélagi, fer varan á næsta pósthús eða póstbox. Kaupandi fær sms frá Íslandspósti áður en sendingin er keyrð út.

Kaupandi fær upplýsingar frá Dropp varðandi sendingar.

Rétt útfylltar upplýsingar eru lykillinn að því að vörur berist á réttum tíma til kaupanda.

Kaupandi hefur 14 daga til að skila vöru að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.

Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Ekki er hægt að skila eða skipta vöru án kvittunar.

Gefin er inneignarnóta ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Vinsamlegast hafið samband við okkur í síma: 888-3441 eða sendið okkur tölvupóst á pantanir@doggo.is ef spurningar vakna.