VarioCage double L+ Hundabúr

New

kr.120,990

  • Fyrir einn eða tvo hunda í einu
  • Árekstraprófað eftir stöðlum
  • Veitir öryggi fyrir þig og alla í bílnum

1 in stock

SKU: 00362 Category:

Description

VarioCage double L+ hundabúr

Mjög hagnýtt tvöfalt búr fyrir hunda. Hentar hundategundum allt að 62 cm á herðakamb. 

Breidd: 99 cm

Hæð: 69 cm

Lengd: 81-103 cm

Þyngd: 34 kg

VarioCage Double L+ hentar vel fyrir hundategundir eins og: Dalmatíuhunda, Husky og Golden Retriever

Tveir hundar geta setið í sundur án þess að trufla hvorn annan. Ef einn hundur þarf meira pláss en hinn er hægt að stilla skiptinguna til hliðar. Einnig er hægt að fjarlægja skilrúmið til að gefa stórum hundi fullt pláss.

Eiginleikar vöru:
– Með krumputækni sem tryggir hámarksöryggi fyrir gæludýrið þitt
– Árekstrarprófað og vottað af SP sem er sænsk prófunar- og rannsóknarstofnun
– Stillanleg lengd
– Neyðarlúga á bakhlið sem snýr í átt að aftursætum
– Hurðarhandfang sem hægt er að opna með annarri hendi.
 – Tveggja þrepa læsing sem smellur sjálf í lás.
– Pumpa sem heldur hurðinni opinni á meðan gæludýrið fer inn eða út
– Innbyggður lyklalás
– Auka auga sem gefur möguleika á að læsa búrinu með hengilás
Ath. að búrin seljast ósamansett.

Samsetningar-leiðbeiningar: VarioCage_Double_2024_03

Nýsköpun

Við erum óhrædd við að fara nýjar leiðir eða hugsa út fyrir rammann. Þess vegna einkennast vörur okkar af nýstárlegum og snjöllum lausnum án þess að skerða öryggi. Við trúum því að allt megi bæta og horfum alltaf fram á veginn, þess vegna erum við stöðugt að þróa vörur okkar.

Vernd

Hjá okkur er öryggi alltaf í fyrirrúmi. Við höfum víðtæka þekkingu á ökutækjum og árekstrarvörnum. Þess vegna vitum við að vörur okkar virka á fyrirfram ákveðinn hátt ef óhappið ætti eftir að verða.

Öryggi

Við höfum þegar tekið tillit til allra í bílnum — ökumanns, farþega og allra sem skipta þig mestu máli. Með því að greina allar mögulegar aðstæður höfum við búið til lausnir sem tryggja öryggi fyrir þig og fjölskyldu þína. Niðurstaðan er óviðjafnanleg vernd fyrir gæludýrið þitt í hverri ferð.

Hundabúr - VarioCage double XL

VarioCage double L+ Hundabúr

kr.120,990

1 in stock